Crypt Software


Markadssyn.is

Undirbúningsvinna að stofnun Markaðssýnar stóð yfir frá síðla árs 2008, en fyrirtækið opnaði formlega 1. apríl 2009.

Stefna Markaðssýnar frá upphafi er að bjóða upp á sérhannaðar heimasíður og netlausnir sem eru á viðráðanlegum kostnaði við uppsetningu og lágum viðhaldskostnaði. Ásamt því að bjóða upp á heimasíður á viðráðanlegu verði, hefur Markaðssýn það að markmiði að veita þjónustu sem skarar fram úr.

Grundvallarhugmyndir sem Markaðssýn byggir á eru einfaldar, viðráðanlegt verð, engin falinn kostnaður og að veita alla þjónustu, án þess að senda reikning fyrir aðstoð sem viðskiptavinir okkar kunna að þurfa eftir að veflausn er komin á netið.

Vefsíða eða heimasíða á að vera mun meira en bæklingur sem er settur upp á Internetið. Heimasíðan þín á að gæta þinna hagsmuna 24 klst á sólarhring, 7 daga vikunnar, 365 daga á ári og virka sem öflugasta markaðstækið sem þú vinnur með .

Þrátt fyrir hve mikilvæg góð vefhönnun er fyrir fyrirtæki, jafnt stór sem smá, þá leita margir eftir ódýrustu lausnunum þegar kemur að vefsíðu, burtséð frá hver raunverulegur kostnaður er, hér tók ég út því þetta er tvítalning. Staðreyndin er, ef heimasíða heillar ekki viðskiptavin, er nothæf og nýtt sem markaðstæki, þá fer fólk einfaldlega yfir á heimasíðu samkeppnisaðila sem nær sölu. Heimasíðan þín á að sjá til þess að viðskiptavinur stoppi við , veki áhuga og komi svo aftur og aftur!

Hjá Markaðssýn höfum við áratugareynslu af því að setja upp vefsíður sem virka, heimasíður sem skila árangi og hagnaði. Okkar markmið er að láta heimasíður sem við smíðum bera sig.

Til að ná slíkum árangi skoðum við meira heldur en bara hvað þú villt á heimasíðuna, við notum tölfræði, rannsóknir og hugmyndir sem notaðar eru út um allan heim, til að auka sölu. Við vinnum með og skoðum stærri vefi erlendis sem velta miljónum dollara á mánuði. Staðreyndin er, stærð vefsins eða markaðarins skiptir ekki öllu máli, heldur hvernig þú nýtir markaðinn sem til staðar er og hversu stórri hlutdeild af þeim markaði þín heimasíða nær.

Við skoðum meira en bara heimasíðuna og vefinn, við skoðum hvernig heimasíðan passar inn í heildarmarkaðssetningu fyrirtækisins og hvernig hægt er að láta þetta vinna saman. Ef þú ert að leita að markaðsfyrirtæki sem skilur hvernig á að ná árangri hérlendis, erlendis, á netinu og með hefðbundinni markaðssetningu, þá ertu búinn að finna aðila til að vinna með. Hafðu samband í dag og opnaðu samskiptarás, við hlökkum til að heyra frá þér og kanna hvort við getum unnið saman að því að koma þínu fyrirtæki í forystu á markaðnum. 

 

© 2009 CryptSoftware.com | Design by RedKnightMarketing